Hugtak.is

key

Nýtt ár, nýjar áskoranir

Nú er nýtt ár gengið í garð og er þetta tilvalinn tími til að staldra aðeins við og taka stöðuna. Hvert stefnum við, hvað viljum við gera næst, hverju þarf að breyta og hvernig. 

Guðlaugur Örn orðaði þetta svo vel í viðtali sem birt var í morgunblaðinu í dag þar sem hann talar um mikilvægi þess að vera með skýr og mælanleg markmið og staldra reglulega við og taka stöðuna og endurmeta ef þess þarf.

Við hvetjum ykkur gott fólk til að staldra við og taka stöðuna og kanna hvaða verkefni liggja fyrir, hvert ferðinni er heitið og hvort þurfi aðeins að endurmeta stöðuna og eflaust setja sér ný markmið. 

Við bjóðum upp á þarfagreiningarviðtöl þar sem við komum til ykkar og finnum út í sameiningu hvar þörfin er mest þ.e. hvað þarf að breytast til að ná settum markmiðum eða ná ennþá lengra. 

Skýr og mælanleg markmið eru lykill að árangri

Endilega hafið samband, við erum alltaf til taks. 

   

Ný þjónustuleið: Virknigreining fyrirtækja

 

Ráðgjafar Hugtaks kynna inn nýtt og frábært verkfæri sem kallast  BSAQ  (Behavior System Analysis Questionnaire) og er það notað sem leiðarvísir við BSA greiningar (Behavioral system anlysis). BSA greining er  virknigreining fyrirtækis þar sem allir ferlar eru greindar fyrir fyrirtækið í heild og alla sundurliðaða þætti þess. Virknigreining vísar til þess að greint er hvernig og af hverju hlutirnir virka eins og þeir gera, hvað stendur í vegi fyrir úrvalsframmistöðu og hvernig er hægt að bregðast við slíkum hindrunum. 

 

BSAQ er  vel hannað greiningartól sem veitir sýn á fyrirtæki í heild sinni. Fyrirtækið er greint sem heild en tekið er hvert þrep og greindir eru allir ferlar og tenging þeirra við heildina.

 

Með þessu greiningartóli er hægt að koma auga á allar "eyður" í kerfinu sem eru að hindra úrvalsframmistöðu starfsmanna, deilda og fyrirtækisins í heild.

BSAQ er þannig uppbyggt að samhliða greiningarvinnunni er unnið að leiðum til að bregðast við mögulegum eyðum í kerfinu. Gerðar eru afleiðingagreiningar, virknigreiningar og ábyrgðarfylki svo eitthvað sé nefnt.

 

Innleiðing nýrra eða endurskoðaðra ferla er þá næsta skynsamlega skrefið og hefur fyrirtækið í höndum sínum upplýsingar og matsaðferðir sem leiða stjórnendur og starfsmenn áfram til meiri árangurs.

Einnig eru innbyggðir eftirfylgdarferlar þannig að hægt sé að fylgjast með árangri innleiddra inngripa og sjá hvernig fyrirtækið fer frá slæmum árangri, sæmilegum árangri eða bara góðum árangri í að ná úrvalsframmistöðu og frábærum árangri.

 

BSAQ er frábært tól fyrir straumlínulaga nálgun og hentugt fyrir ráðgjafa til að klára ASDIER* ferlið sitt.

*Analyze, Specify, Desgin, Implement, Evaluate, Recycle °

Ráðgjafar Hugtaks eru í samstarfi við fræðimenn í Western Michigan Háskóla. Sá háskóli er fremstur í fræðum Organizational Behavior Managament sem er vísindaleg nálgun á vinnutengda hegðun og mannauðsstjórnun hvað varðar notkun BSAQ við ráðgjöf. 

   

Hugtak viðurkenndur þjónustuaðili vinnueftirlitsins í vinnuvernd

Vinnueftirlitið veitti á dögunum Hugtaki viðurkenningu til starfa sem þjónustuaðili í vinnuvernd með áherslu á andlega og félagslega þætti.

Samkvæmt lögum er atvinnurekendum skylt að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað sínum, en það er einnig til mikils að vinna með bættri heilsu og öryggi starfsmanna, og má þar meðal annars nefna:

  • Færri fjarvistir
  • Minni starfsmannavelta
  • Meiri framleiðni
  • Aukin starfsánægja og betri ímynd
  • Minni kostnaður vegna óhappa / slysa
Nánar...
   

 Reykjavík
Sími: 571-5000

Greinar

Aðrar upplýsingar

Heimilisfang
Höfðabakki 3
 110 Reykjavík
 Sími  571-5000 

Fylgstu með okkur á:

FaceBook-icon Twitter-iconBlog