Ferilskrá
-
Hafðu ferilskrá þína eins og þér hentar og lýsir þér best
-
Vandaðu allan frágang, þettu eru fyrstu kynni atvinnuveitanda af þér
-
Hafðu engar óþarfa skreytingar
-
Reyna að miða við að ferilskráin sé um tvær blaðsíður
Röð atriða í ferilskrá
-
Efst á blaði eru persónulegar upplýsingar um þig og þína hagi.
-
Starfs-og námsferill kemur þar á eftir í réttri tímaröð. Byrjaðu að tilgreina nýjustu reynsluna og færðu þig svo aftar í tímatali.
-
Næst kemur tölvu-og tungumálakunnátta.
-
Svo koma meðmælendur. Passaðu að tilgreina ef hafa á samband við þig áður en haft er samband við meðmælendur.
-
Skrifaðu persónulegt bréf með ferilskránni ef það á við og tilgreindu þar nánar áhuga þinn á starfinu og hvað þú hefur fram að færa fyrir það starf.
Gerð kynningarbréfa/starfsumsókna
Þegar þú hefst handa við að búa til kynningarbréfið skaltu miða það út frá því hvernig þú hentar í starfið og af hverju. Hvað gerir þig hæfa(n) og ef til vill hæfari en aðra til að sinna þessu starfi. Tengdu þína reynslu og þekkingu við verkþætti og kröfur starfsins.
-
Hafðu bréfið eitt A4 blað
-
Hafðu hámark 2 fylgiskjöl með béfinu
-
Ekki endurtaka atriði í ferilskrá nema þú sért að tiltaka og lýsa enn betur eðli þekkingar þinnar
-
Skrifaðu að lokum undir bréfið
Starfsviðtal
Áður en þú leggur í starfsviðtal skaltu undibúa þig lítillega.
-
Aflaðu þér upplýsinga um fyrirtækið sem þú ert að sækja um starf hjá.
-
Myndaðu þér spurningar sem þú hyggst spyrja í starfsviðtalinu. Spurningar sem snúa að starfinu sem og fyrirtækinu í heild.
-
Undirbúðu svör við spurningum sem eru líklegar til að koma fram í viðtalinu.
-
Mættu tímanlega í viðtalið.
-
Hafðu með þér ferilskrá og starfssumsókn og önnur viðeigandi gögn.
-
Vertu snyrtileg(ur) til fara.
-
Reyndu að vera ekki of stressaður/stressuð en taktu samt viðtalið alvarlega.
-
Vertu samkvæm sjálfum/sjálfri þér.
-
Slökktu á gsm símanum þínum.