Í kjölfar uppsagna eða starfsloka er oft nauðsynlegt að takast á við breyttar aðstæður með opnum og jákvæðum hug. Þessi vinnustofa fjallar um hvernig hægt sé að takast á við breyttar aðstæður á vinnumarkaði, hvernig haga bera undirbúningi atvinnuleitar og hvernig hægt sé að nýta styrkleika sína sér til framdráttar. Vinnustofan tekur á atriðum eins og:
- Uppfærð ferilskrá og öll fylgigögn.
- Jákvæð sálfræði; Hverjir eru mínir styrkleikar.
- Jákvæð sálfræði; Hver er ég og hver er staða mín á vinnumarkaði?
- Markmiðasetning.
- Árangursrík atvinnuleit.
Vinnustofan hentar öllum sem þurfa að takast á við breyttar aðstæður á vinnumarkaði og getur nýst fyrirtækjum sem þurfa að fara í uppsagnir eða skipulagsbreytingar.