Er rík öryggisvitund meðal þinni starfsmanna?
Vantar réttu hvatninguna til að auka öryggistengda hegðun?
Við höfum lausnina! kynntu þér málið í síma 571-5000 og fáðu samband við ráðgjafa.
Öryggistengd hegðun er sú hegðun starfsmanna sem lýtur að því að fara eftir settum reglum og stöðlum sem eiga að auka öryggi þeirra í starfi. Fyrirtæki eru oftar en ekki mjög vel búin að öllum öryggisbúnaði og fylgja þeim stöðlum sem þeim ber. Eftirfylgni þeirra reglna og staðla, og notkun búnaðar, getur þó verið ábótavant hjá hluta starfsfólksins.
Við hjá Hugtaki bjóðum upp á ýmsar leiðir sem eru hannaðar til að auka þá hegðun starfsmanna að fylgja öryggisreglum og þar með fækka vinnutengdum slysum, fjarvistum og öðrum veikindum. Oft þarf bara réttu hvatningakerfin og eftirfylgni til auka öryggistengda hegðun starfsmanna.
Öll okkar vinna byggir á raunprófuðum aðferðum og vinnum með þeim hætti að allt sem við gerum skilar sér með mælanlegum og sýnilegum árangri.
Boðið er upp á lausnir allt frá hlutaþjónustu þar sem hægt er að auka ákveðna tegund öryggistengdrar hegðunar til heilstæðs kerfis sem tekur mið af öryggi heillar deildar, sviðs eða fyrirtækis í heild.
Ef þú ert með frekari spurningar eða fyrirspurning um þessa þjónustu getur þú haft samband í johanna.ella(hja)hugtak.is eða hringt í síma 571-5000