Hugtak.is

Árangursmælingar

 

Hvað er árangur?

Til þess að geta metið árangur þurfa markmið að vera skýr. Ef meta á árangur í tilteknu starfi, árangur deildar, sviðs eða fyrirtækja í heild þarf að hafa eitthvað til að miða við. Grundvöllur þess að geta mælt eitthvað er að geta skilgreint það á hlutlægan máta. Einnig þarf að taka mið af öllum  áhrifum og útiloka þau í slíku mati.

 

Árangursmælingar ber að útfæra með faglegum hætti. Ef árangurstengja á laun eða umbuna fyrir ákveðinn árangur í starfi, ákveðna niðurstöðu eða útkomu starfs þarf að fara rétt að svo ekki sé verið að umbuna fyrir ranga hegðun. Frammistöðumat er því mikilvægt í slíku starfi hvort sem það á við um að meta frammistöðu eins starfsmanns, heillar deildar eða stjórnenda.

Nauðsynlegt er fyrir öll fyrirtæki að meta árangur sama hvort um mannauð, almenna starfsemi, vörur eða aðra þætti í rekstri fyrirtækja er að ræða. Án árangursmælinga er ekki hægt að komast að því hvort starfið sé að skila tilætluðum áhrifum og sé að stefna í rétta átt.

rangur

 

Ráðgjafar Hugtaks eru mjög vel að sér í árangursmælingum og bjóða upp á þjónustu sem lýtur að öllum þáttum árangursmælinga innan fyrirtækja.

 

 Ef þú ert með frekari fyrirspurnir eða spurningar getur þú haft samband í gudlaugur(hja)hugtak.is eða í síma 571-5000.

 

 Reykjavík
Sími: 571-5000

Greinar

Fylgstu með okkur á:

FaceBook-icon Twitter-iconBlog