Ráðgjafar Hugtaks bjóða upp á sannreyndar og góðar aðferðir við gerð frammistöðumats sem eiga við alla starfsmenn fyrirtækja sama hvaða stöðu þeir gegna. Þær aðferðir sem við notum við gerð frammistöðumats hafa sýnt fram á að hægt er að ná fram hámarks frammistöðu starfsmanna með hönnun viðeigandi hvatningarleiða/kerfa útfrá slíku mati
Greindir eru mögulegir umhverfisþættir sem gætu haft hamlandi áhrif á frammistöðu starfsmannsins/starfsmannanna og athugað hvaða þættir viðhalda æskilegri og óæskilegri vinnuhegðun. Með notkun frammistöðugátlistans, pic/nic greiningum auk annarra verkfæra er hægt að hámarka frammistöðu starfsmanna með mælanlegum hætti. Samhliða greiningunni eru fundin frammstöðuviðmið og leiðir til að ná þeim. Auðveldar þetta bæði starfsfólki og stjórnendum að ná sameiginlegum árangri í starfi sem aftur bætir hag fyrirtækisins.
Kynntu þér málið í síma 571-5000 eða hjá johanna.ella(hja)hugtak.is