Hvatarkerfi og umbunarkerfi eru af sama meiði. Hér er átt við kerfi sem miða að því að ná fram bestu frammistöðu starfsmanna. Hægt er að fara margar leiðir í slíkum efnum en Hugtak miðar við að allt slíkt starf sýni mælanlegan árangur og innleiðing slíkra kerfa skili settum árangri fyrir fyrirtæki. Þjónustan er þannig úr garði gerð að við getum sýnt fram á að það sem við gerum beri árangur.
Hvatakerfi eru þau kerfi sem miða að því að umbuna fyrir æskilega hegðun starfsmanna, þá hegðun sem leiðir til bestu frammistöðu í starfi og skilvirkari vinnu en ella. Starfsmönnum sem er umbunað fyrir vel unnin störf eru líklegri til að halda slíkum vinnuháttum áfram og verða betri starfsmenn fyrir vikið. Skilvirkari og betri starfsmenn skila betri vinnu til fyrirtækisins og fyrirtækið nær settum markmiðum og árangri. Starfsmenn sem sjá gildi þess að vinna starf sitt vel eru mun ánægðari en aðrir starfsmenn og minni likur eru á vinnustreitu og vinnuleiða ef vel er staðið að slíku hvatningarkerfi.
Mikill ávinningur er fyrir fyrirtæki að innleiða góð umbunar/hvatakerfi þar sem þau bæta hag fyrirtækja sé vel að þeim staðið.

Hvata- og umbunarkerfi geta verið lítil í sniðum sem og stór. Hægt er að taka fyrir nokkra starfsmenn, deildir innan fyrirtækja, svið eða fyrirtækið í heild og hanna árangursríkt hvatningarkerfi á öllum stigum. Einnig eru hvatakerfi byggð í kringum stjórnendur fyrirækja.
Kerfin eru aðlögðuð og hönnuð í kringum það fyrirtæki sem á við að hverju sinni og er því alfarið farið eftir þörfum og kröfum þess fyrirtækis sem um ræðir.
Ráðgjafar Hugtaks hafa greinagóða þekkingu á hönnun hvatakerfa og umbunarkerfa og veita persónulega og góða þjónustu við innleiðningu slíkra kerfa. Við störfum eftir hugmyndafræði atferlisgreiningar og er því allt starf okkar mælanlegt og sýnir mælanlegan árangur. Við skilum af okkur ítarlegri greinagerð og leiðbeiningar um eftirfylgni og hagnýtar upplýsingar sem fylgja fyrirtækinu áfram .
Ef þú hefur frekari spurningar eða fyrirspurnir varðandi þjónustuna hafðu þá endilega samband í síma 571-5000 eða í gudlaugur(hja)hugtak.is