STARFSÁNÆGJA, HÁMARKS FRAMMISTAÐA, GÓÐAR BOÐLEIÐIR OG ÁRANGUR Í STARFI, er algjörlega háð því að starfsmaður viti hvað hann á að vera gera og hvers er ætlast af honum. Grunnur góðrar vinnu er ÁVALLT góð og ítarleg starfsgreining. Án starfsgreiningar er ekki hægt að meta frammistöðu né árangur og líklegt er að í illa skilgreindu starfi, sé óánægður og framtakslítill starfsmaður.
Tilgangur starfsgreininga er að skilgreina hvert starf með tilliti til þeirrar hegðunar sem nauðsynleg er til að sinna starfinu. Starfsgreining felur í sér lýsingu á þeim verkefnum er starfinu fylgja, verklagi, ábyrgð, tækjum, tólum og frammistöðuviðmiðum ásamt þeirri hegðun, þekkingu, færni og öðrum eiginleikum sem starfið krefst af starfsmanni. STARFSGREINING ER GRUNNUR GÓÐRAR VINNU!
Starfsmenn Hugtaks nota einungis raunprófaðar aðferðir og þær bestu sem bjóðast. Í kjölfar starfgreininga bjóðum við upp á áframhaldandi þjónustu sé þess óskað eins og frammistöðumat og hönnun hvatningarkerfa. Endilega kynntu þér málið í síma 571-5000 og fáðu samtal við ráðgjafa.
Starfsgreining er mikilvæg þegar
ráða á nýja starfsmenn
þjálfa á núverandi starfsmenn
flokka á störf
útbúa á handbækur fyrirtækja/starfsmanna
hanna eða þróa á nýtt starf
færa á starfsfólk milli starfa
auka á skilvirkni í starfi og hámarka frammistöðu starfsmanna
meta á frammistöðu í starfi.

Ef þú hefur frekari spurningar eða fyrirspurnir varðandi þjónustuna getur þú sent tölvupóst á gudlaugur(hja)hugtak.is eða hringt í síma 571-5000