Af hverju á fyrirtæki að kaupa ráðningarþjónustu?
Margar ástæður eru fyrir því af hverju fyrirtæki ættu að nýta sér þá ráðningarþjónustu sem ráðgjafarfyrirtæki bjóða upp á.
Þekking
Ef um ræðir fyrirtæki sem er með hæft starfsfólk sem veit nákvæmlega hvernig er best að standa að því að hanna ráðningarferli eru mun líklegra en ella að viðeigandi og gott ráðningarferli verði hannað fyrir starfið sem um ræðir.
Sérstakur metnaður er lagður í það að hanna ráðningarferlið, ráðgjafanum er í mun að finna hæfasta einstaklinginn í starfið og mun nota öll þau úrræði sem hann hefur tiltæk. Af hverju? Nú því það er hans starf og hans ábyrgð og er hans þjónusta fyrir viðskiptavin sinn. Þeir sem inna slík störf af hendi eru einmitt með þá þekkingu sem þarf.
Úrræði
Ráðningarþjónustur og ráðgjafar þeirra hafa í fórum sínum próf og mælitæki sem fyrirtæki hafa sjaldnast á sínum snærum og geta því aukið forspárgildi um frammistöðu umsækjenda í starfi svo um munar. Sérstaklega ef ráðningarferlið er rétt hannað og forvinnan vel unnin. Ekki er nóg með að ráðgjafar hafa slík úrræði innan handar heldur hafa þeir mikla reynslu af notkun þeirra.
Tengslanet
Ráðningarþjónustur eiga oftar en ekki stóran gagnagrunn af fólki sem er að leita sér að starfi og margar hverjar eiga meiri upplýsingar um fólkið heldur en bara ferilskrá þar sem almenn viðtöl eru á flestum stöðum og búið er að safna umfram gögnum sem gagnast þegar leitað er í gagnagrunni.
Ef ráðningarþjónusta notar tengslanet sitt til að kanna hvort hæfir umsækjendur séu fyrir ákveðið starf er ekki um frændskap að ræða þar sem utanaðkomandi aðili (ráðgjafinn sjálfur) er ábyrgur fyrir valinu og veltur á þeim aðila að faglega sé staðið að málum. Tengslanet í þessum skilningi er einmitt ekki frændskapur heldur viðamikið tengslet sem hefur skapast vegna stöðu ráðgjafans hjá ráðningarþjónustunni.
Orðstír
Ráðningarþjónustur eru flestar þannig gerðar að fyllsta trúnaðar er gætt. Einnig er ákveðin aðferðarfræði sem fræðin hafa sýnt að hlúi að umsækjanda og jákvæðri upplifun hans af ráðningarferlinu. Vinni ráðgjafar eftir þeim leiðum upplifa umsækjendur síður óréttlæti og vanvirðingu og verndar það orðstír fyrirtækisins. Þar að auki fari umsækjandi ósáttur frá borði er mun líklegra að hann eigni ráðningarþjónustunni vandkvæðin en sjálfu fyrirtækinu.
Kostnaður
Þegar litið er til kostnaðar í þessu samhengi á hann sér margar hliðar. Fyrir það fyrsta þá kostar alltaf að standa að ráðningu.
Tökum bara sem dæmi ef fyrirtækið sjálft sér um ráðningarferlið. Fyrst þarf að gera ítarlega starfsgreiningu (ef hún er ekki fyrirliggjandi) því næst þarf að taka saman starfslýsingu og hanna auglýsingu. Koma henni í blöðin og bíða átekta. Svo þarf að halda utan um umsóknir. Í dag er mikið atvinnuleysi og eru margir um hverja stöðu sem þýðir að mikill fjöldi umsókna muni berast.
Vinnan við að greiða úr umsóknum, fara yfir alla helstu sem koma til greina, boða þá í viðtöl, taka viðtölin, hafa samband við meðmælendur. Prófa þá þætti sem þarf (ef það á við) hafa samband við alla hina sem sóttu um og ganga frá ráðningu er vinna sem þarf að inna af hendi og verður það þá vinna sem gerist innanhúss.
Segjum að hér sé fagaðili að verki, gefum okkur að viðkomandi sé með 400.000 krónur í mánaðarlaun. Slík vinna tæki viðkomandi kannski 10-15 heila vinnudaga. Þá eru komnar 2-300 þúsund krónur bara í þann starfsmann í þessu utanumhaldi. Þar að auki þarf að kaupa auglýsingu í blöðin og huga að öllu sem máli skiptir í þessu samhengi. Þarna er farið á mis við alla kosti þess að kaupa ráðningarþjónustu og SAMT kostar það fyrirtækið langleiðina upp í 500.000 krónur við það bara að ráða inn nýjan starfsmann.
Hér er ekki litið til þess kostnaðar að ef ekki er staðið faglega að ráðningunni og hæfasti umsækjandinn ekki ráðinn þá gæti mögulega bæst við kostnaður við þjálfun þess starfsmanns, starfsamannaveltu vegna lélegs "job fit" og einfaldlega sá kostnaður að ef viðkomandi er að sýna verri frammistöðu en annar umsækjandi hefði gert getur það kostað fyrirtæki háar upphæðir á hverju starfsári þess starfskrafts
.
Mikilvægt er að ráða inn rétta fólkið af svo mörgum ástæðum og því er oft miklu betra að nota þjónustu sem sérhæfir sig í slíku vali og ábyrgist ráðninguna. Borgar það sig að fela kostnað í launakostnaði innanhúss og borga svo kannski enn meira fyrir þennan starfsmann þegar lengra líður á?
Svarið er einfaldlega NEI það borgar sig ekki.

Höfundur: Jóhanna Ella Jónsdóttir