Áfallahjálp vinnustaði og einstaklinga
Áföll geta komið fyrir hvern sem er, hvenær sem er, bæði í vinnuumhverfinu sem og í einkalífinu. Áföll geta haft alvarlegar afleiðingar en mismiklar eftir því hver á í hlut og hvers eðlis áfallið er. Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt fyrir alla aðila að vinna úr reynslunni. Sé það ekki gert getur það leitt til t.d. þunglyndis og/eða kvíða eða annarra einkenna. Í alvarlegri tilfellum getur áfallastreita gert vart við sig.
Margskonar ógnvekjandi aðstæður og neyðartilfelli geta komið upp innan fyrirtækja/stofnana. Líkur á slíku eru mismiklar eftir því hversu hættuleg störf geta verið en kveðið er á um slíka áhættuþætti í lögum og ber vinnustöðum, lögum samkvæmt, að vernda starfsmenn í slíkum aðstæðum. Einstaka starfsmenn eða stærri starfsmannahópar geta orðið fyrir áföllum bæði eint eða óbeint.
Andlát, veikindi eða slys eru einmitt þess eðlis.
Hugtak veitir vinnustöðum áfallahjálp með því að veita aðgang að sálfræðingi sem kemur á fund með starfsmönnum/starfsmannahópum eftir áfall. Einnig er hægt að veita einstaklingsstuðning sé þess kosið.
Hugtak býður einnig upp á fræðslu um áfallahjálp fyrir vinnustaði. Hér er um að ræða bæði fræðslu fyrir stjórnendur sem og fræðslu fyrir starfsmannahópa.
Nánari upplýsingar um þessa þjónustu veitir Jóhanna Ella í johanna.ella(hja)hugtak.is