Hefur fyrirtækið þitt mælt vinnutengda streitu starfsmanna nýlega?
Við bjóðum upp á slíkar mælingar, kynntu þér málið í síma 571-5000
Við bjóðum upp á áhættumat, íhlutun, þjálfun, ráðgjöf og eftirfylgni sem bæði veitir fyrirtækjum kost á að bæta andlega heilsu starfsmanna sinna með því að aðlaga vinnuumhverfi og kröfur starfsins eftir því sem við á sem og veita starfsmönnum ráðgjöf og þjálfun í álags- og streitustjórnun.
Andleg vellíðan í vinnuumhverfinu·er háð því að fólk sé ánægt og sælt í vinnunni, að það upplifi ekki streitu og vanlíðan vegna verkefna starfsins, krafna þess eða annarra þátta í vinnuumhverfinu sem gætu haft streituvaldandi áhrif.
Streita getur verið·hugræn, líkamleg og tilfinningaleg. Streita getur verið aðstæðubundin og háð ákveðnum þáttum starfsins og eru þeir þættir margvíslegir. Áhrif streitu eru til að mynda
- andleg vandlíðan
- kvíði
- þreyta
- svefnvandi
- ýmsir líkamlegir kvillar eins og verkir og vöðvabólga.
Streita hefur óneitanlega áhrif á vinnutengda hegðun starfsmanna og getur leitt til
- vinnuleiða,
- aukinna fjarvista,
- aukinna veikindaga,
- dregið úr skilvirkni, framleiðni og sköpunargleði.
- leitt til kulnun í starfi
Á sama tíma sparar fyrirtækið sér þann kostnað sem felst í því að vinnustreita hamli starf starfsmanna og leiði til aukinna fjarvista og starfsmenn upplifa þá mun betra vinnuumhverfi eru ánægðari í starfi og hafa lært nýjar leiðir til að takast á við álag og streitu í starfi sínu.
Ef þú vilt frekari upplýsingar um þjónustu okkar sendu póst á netfangið· Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.