Samrunar fyrirtækja er flókið ferli hvort sem snýr að lagalegum hliðum, fjárhagslegum hliðum eða innri þáttum og starfsemi. Mannauður er þar ekki undanskilinn. Þegar kemur að mannauð fyrirtækja þá geta samrunar haft neikvæðar afleiðingar fyrir starfsmenn og fyrirtækið í kjölfarið.
Hjá starfsmönnum getur myndast töluverður ótti, reiðuleysi og skilningsleysi á aðstæðum, ef til vill þarf að fækka fólki, sameina deildir og fá fólk úr ólíkum deildum eða fyrirtækjum til að vinna saman. Í slíkum aðstæðum getur liðsheild beðið hnekki og neikvætt starfsumhverfi myndast. Fólk getur verið hrætt um störf sín, upplifir umskiptin sem reiðuleysi og viðhorf þess til fyrirtækis og stjórnenda getur orðið neikvætt. Orðspor fyrirtækisins getur auk þess verið í húfi, framleiðni, þjónustu og teymisvinnu gæti hrakað til muna og mikil vinnustreita gæti gert vart við sig. Slíkar aðstæður hafa neikvæð áhrif á fyrirtækið og afkomu þess.
Við samruna ber að halda fagmannlega á spilunum, haga undirbúningi afar vel og fara vel í gegnum hvert stig sameiningarinnar. Breytingar geta orðið á uppbyggingu fyrirtækisins, boðleiðum, hlutverkaskiptum, ábyrgð starfsmanna og starfslýsingum þeirra. Starfsmenn þurfa því að vera fullkomlega meðvitaðir um hvernig og af hverju breytingar eru í bígerð og til hvers þær muni leiða. Ennfremur verða markmið fyrirtækisins, bæði til skamms tíma og til langs tíma, að vera öllum skýr.
Við hjá Hugtaki veitum faglega ráðgjöf í þessum málum og aðstoðum fyrirtæki við að hlúa að mannauði sínum þegar slíkar breytingar eru í vændum og fylgjum fyrirtækjum í gegnum slíkt ferli.
Þjónustan okkar felst meðal annars í:
-
Greiningu þeirra starfa sem eftir standa
-
Að hjálpa við val á þeim starfsmönnum sem eftir verða
-
Aðstoða við uppsagnir sem ekki verður hjá komist
-
Uppbyggingu nýs starfsanda á vinnustað og mótun liðsheildar
-
Þjálfun starfsmanna eftir breytingar
-
Skilgreining stefnu mannauðsmála eftir samruna
-
Aðstoð við skilgreiningar og uppbyggingu eftir samruna
Frekari fyrirspurnir berist til gudlaugur(hja)hugtak.is·eða í síma 571-5000