Við viljum reyna að veita viðskiptavinum okkar alla þá þjónustu sem þeir þurfa og Starfsmannstjóri til leigu er ein þessara leiða. Í grunninn er þessi leið einfaldlega þjónustusamningur sem gerður er milli Hugtaks og viðskiptavinar – og er samsettur eftir þörfum hverju sinni.
Mörg fyrirtæki geta ekki verið með mannauðsstjóra í fullu starfi allan ársins hring en hafa samt óbilandi metnað til að sinna starfsmönnum og viðskiptavinum sínum eins vel og mögulegt er. Oft sitja slík mál því á hakanum þegar þau eru á herðum annara starfsmanna, t.d. framkvæmda- eða skrifstofustjóra, og árangur þessara verka er minni en gæti verið.
Þau verk sem Hugtak gæti tekið yfir og létt undir með þér eru til dæmis:
- Ráðningar
- Hönnun hvatakerfa
- Stefnumótun
- Frammistöðumælingar
- Árangursmat
- Sálfræði aðstoð
- Starfsmannakannanir og viðtöl
- Álags-og streitustjórnun
- Vinnusmiðjur og námskeið
- Launamál
- Starfsmannaþjálfun
- Heilsuefling
- Starfslok og uppsagnir
- og margt fleira sem hægt er að útfæra eftir þörfum
Ávinningur fyrirtækja af þessari leið er margvíslegur. Til dæmis veitir þetta stjórnendum tíma og orku til að sinna öðrum aðkallandi verkefnum eins vel og þeir þurfa. Að sama skapi mun úthýstum verkefnum vera sinnt eins vel og hugsanlegt er – og mögulega betur en téðir stjórnendur gátu gert áður vegna tímaskorts. Jafnframt er engin þörf á því að kaupa aðkeypta þjónustu ráðninga – eða ráðgjafafyrirtækja nokkrum sinnum á ári með tilheyrandi kostnaði...
....Hugtak getur séð um allan pakkann.
Hafðu samband og við gefum þér ítarlegri upplýsingar um þessa þjónustuleið. Verðið mun vonandi líka koma þér á óvart!
Síminn okkar er 571-5000 eða hægt er að senda póst á gudlaugur(hjá)hugtak.is
Hjá þeim fyrirtækjum er þurfa aðeins liðsauka en er þegar með starfsmannastjóra þá bjóðum við einnig upp á Ráðgjafa til Leigu.....
Ráðgjafi til leigu
Ráðgjafi Hugtaks er leigður inn í fyrirtækið í ákveðinn tíma eða fenginn til vera innan handar og veita ráðgjöf varðandi verkefni er tengjast mannauð fyrirtækisins. Ráðgjafi til leigu hentar vel þegar verkefnaálag er mikið og þörf á sérhæfði aðstoð, en ekki er talið vera nauðsynlegt að fastráða starfsmann til fyrirtækisins. Ekkert verkefni er of lítið né stórt svo hægt sé að nýta þessa þjónustu.
Ráðgjafi til leigu er því þjónusta sem sniðin er að þörfum fyrirtækisins þar sem þekking og þjónusta er keypt inn til fyrirtækisins með ráðgjafanum.