Þegar móta þarf stefnu fyrirtækis þarf fyrst og fremst að huga að þremur spurningum:
- Hvar erum við í dag?
- Hvert ætlum við að fara?
- Hvernig ætlum við að komast þangað?
Ráðgjafar Hugtaks aðstoða viðskiptavini við að svara þessum grundvallarspurningum stefnumótunar á faglegan máta og skilgreina meðal annars:
- Hlutverk og sérstöðu fyrirtækisins á þeim markaði sem þeir tilheyra.
- Gildi fyrirtækisins og hvernig þau eru rauður þráður og vegvísir í öllu starfi þess.
- Framtíðarsýn fyrirtækisins til lengri og styttri tíma.
- Tilgang fyrirtækisins.
- Markmið fyrirtækisins.
- Hvernig skuli mæla hvernig gangi að ná markmiðum og fylgja stefnu.
- Lykilverkefni og vörur.
Ásamt því að skoða meðal annars:
- Markhópa.
- Markaðshreyfingar.
- SVÓT greiningar.
- Styrkleika mannauðs fyrirtækisins.
- og margt fleira.
Þær aðferðir sem við notum eru vel þekktar og hafa sannað gildi sitt margsinnis. Við notumst við Stefnumiðað árangursmat, BSA greiningarkerfi ásamt fleiri árangursmódelum og ábyrgjumst góðan árangur.
Endilega hafðu samband ef frekari upplýsinga er óskað. Síminn er 571-5000 og netfangið radgjof(hja)hugtak.is eða jafnvel gudlaugur(hjá)hugtak.is