Hugtak býður upp á þarfagreiningu fyrir fyrirtæki. Sú þjónusta felst í því að greina hvar mesta þörfin er fyrir breytingar, fræðslu eða þjálfun innan fyrirtækja.
Oft á tíðum er þörf fyrir breytingar án þess að bersýnilegt sé hvar sú þörf liggur. Einnig geta málin sem um ræðir verið óljós eða óupplýst.
Hugtak býður öllum þeim sem leita til okkar upp á viðtal þar sem farið er yfir helstu atriði, upplýsingum safnað, vandinn greindur og lagt mat á þá þjónustu sem gæti nýst þínu fyrirtæki.
Ef slíkt er enn óljóst eftir þarfagreiningarviðtalið er hægt að þreifa enn betur fyrir sér með ýmiskonar leiðum og við komust að niðurstöðu. Þarfagreining gæti verið lykilinn að breytingum sem leiða til árangurs.

Við erum sanngjörn í verði og afar fær á okkar sviði.
Endilega kynntu þér málið í síma 571-5000 eða sendu póst á gudlaugur(hja)hugtak.is