Hugtak.is

Starfsmannaþjálfun

 

Þjálfun starfsmanna er þjónusta sem Hugtak veitir ýmist í kjölfar nýrra ráðninga eða innleiðingu kerfa. Einnig er hægt að koma inn í fyrirtæki og gera þarfagreinginu þjálfunar og meta hvar, hvernig og hvenær þjálfurnar er þörf. 

Þjálfun starfsmanna er mikilvæg svo starfsmenn fái næga þekkingu á starfinu, verkþáttum, kröfum þess og fái heildarsýn yfir starfið. Einnig er mjög mikilvægt að starfsmenn nái góðri færni í mikilvægum þáttum starfsins strax svo þeir geti sem fyrst skilað árangri í starfi. Slíkt skilar hagnaði fyrir fyrirtækið og eykur sjálfstraust og vellíðan starfsmannsins.

Til þess að vel sé staðið að þjálfun starfsmanna hvort sem um ræðir nýja starfsmenn eða þjálfun núverandi starfsmanna þarf að byrja á því að greina hvar þjálfunarþörfin er. Þarfagreining þjálfunar er gerð með ítarlegri greiningu á starfinu, vinnuumhverfinu og breytingum í starfi. Gátlisti frammistöðumats er notaður til að fá enn skýrari mynd af starfinu og hvaða þáttum þarf að skerpa á. 

Þjálfun starfsmanna ber að gera faglega. Við hjá Hugtaki veitum þá þjónustu af miklum metnaði og skilum af okkur vinnunni á þann hátt að starfsmenn vita til hvers er ætlast og hvernig þeir eiga að skila hámarks frammistöðu í starfi. Einnig veitum við stjórnendum tól til hvatninga fyrir tiltekna stöðu, ásamt grunni að framtíðar frammistöðumati og hagnýtingu þekkingar til fyrirtækisins.

Untitled

Ef þú hefur frekari fyrirspurnir um þessa þjónustu,  getur þú haft samband í gudlaugur(hja)hugtak.is eða í síma 571-5000.

 

Greinar

Aðrar upplýsingar

Heimilisfang
Höfðabakki 3
 110 Reykjavík
 Sími  571-5000 

Fylgstu með okkur á:

FaceBook-icon Twitter-iconBlog