Hugtak.is

Frammistöðugreining fyrirtækja

Ráðgjafar Hugtaks bjóða upp á greiningu á fyrirtækinu í heild. Við störfum eftir þaulreyndum leiðum sem skila ótvíræðum árangri.

Með fyrirtækjagreiningu er átt við að frammistaða fyrirtækisins í heild skoðuð og er notast við svokollaða Behavioral System Analysis (BSA) aðferð sem byggir á margra ára rannsóknum. Fyrirtækið gengst ekki einungis undir greiningu heldur unnið með það að leiðarljósi að greina og leiða inn úrbætur fyrir hvert starf, deild og skipulagsheild sem svo leiðir til þess að hagur fyrirtækis vænkast. Úrbætur eru til þess gerðar að fyrirtækið nái markmiðum sínum og auðveldara sé að framfylgja stefnunni með markvissum hætti.

 

BSA er heildstæð nálgun þar sem unnið er með það markmið að bæta frammistöðu starfsmanna fyrirtækis til framtíðar og með því bæta frammistöðu og hag fyrirtækisins. Hefbundin frammistöðustjórnun tekur oft ekki mið af fyrirtækinu sem einni heild og því getur vantað að taka mið af breytingum og öðrum straumum fyrirtækisins við hönnun slíkra frammistöðukerfa.


BSA aðferðin felst í því að greina hvernig þættir fyrirtækisins í heild  vinna saman, ásamt því að greina hvernig og hvað hver og  einn starfsmaður innan fyrirtækisins leggur af mörkum til virkni þess í heild.

 

BSA samanstendur af mörgum lausnum og þar á meðal frammistöðustjórnun en aðrir þættir eru

  • hönnun ferla
  • sjálfvirkni
  • stefnubreytingar/stefnumótun
  • breytingar í dreifingu úrræða og mannauðs
  • aðferðmótun og áætlanabreytingar
  • þróun hvatningarkerfa
  • enduruppbygging skipulagsheildar
  • hvatningu stjórnenda

.......svo eitthvað sé nefnt.

Með því að greina fyrirtækið sem heild er hægt að koma auga á breytur sem hafa veruleg áhrif á frammistöðu einstakra starfsmanna sem og fyrirtækisins í heild.BSA aðferð til að bæta frammistöðu er í hnotskurn greining á mörgum sviðum fyrirtækisins með notkun sértækra verkfæra. Einnig er það aðstoð við það að greina markmið, koma auga á vanda og þróa lausnir.


Ef þú ert með frekari spurningar eða fyrirspurning um þessa þjónustu getur þú haft samband í johanna.ella (hjá) hugtak.is eða hringt í síma             571-5000      

 

 

Greinar

Aðrar upplýsingar

Heimilisfang
Höfðabakki 3
 110 Reykjavík
 Sími  571-5000 

Fylgstu með okkur á:

FaceBook-icon Twitter-iconBlog