Upplýsingar um stöðu fyrirtækja á markaði eru nauðsynlegar fyrirtækjum sem vilja viðhalda eða auka samkeppnishæfni sína. Þá er þekking á þörfum og kröfum markaðsins forsenda allrar stefnumótunar í árangursríkri áætlanagerð.
Starfsmenn Hugtaks hafa allir góða menntun og reynslu í gerð og úrvinnslu kannanna af ýmsu tagi. Fagleg vinnubrögð við gerð markaðskannana eru mikilvæg svo að líkur á réttmætum og marktækum niðurstöðum aukist sem gerir alla áætlanagerð markvissari í framhaldinu.
Ef þú vilt frekari upplýsingar um þjónustu okkar varðandi markaðskannanir getur þú sent okkur tölvupóst á netfangið gudlaugur(hja)hugtak.is eða í síma 571-5000.