Hugtak.is

Fyrirtækið

 

Hugtak mannauðsráðgjöf ehf. var stofnað í árslok 2010 en formlegur rekstur hófst 4.mars 2011. Hugtak er fyrirtæki sem státar sig af persónulegri gæða þjónustu sem einkennist af miklum metnaði og krafti. Fyrirtækið samanstendur af fólki með mikla menntun að baki og greinagóða þekkingu á þeim verkefnum sem það tekur sér fyrir hendur.

Hugtak býður upp á víðtæka þjónustu er snertir mannauð fyrirtækja, allt frá því að afla umsækjenda og ráða í stöður til þess að koma á fót viðamiklum og hagnýtum frammistöðukerfum innan fyrirtækja sem efla þau að öllu leiti. Hugtak hefur aflað sér mikillar þekkingar á þessu sviði og nýtir öll tækifæri til að afla sér frekari reynslu og þekkingar. Eigendur Hugtaks eru meðlimir OBM network sem er leiðandi samfélag fræðimanna og fagfólks á sviði mannauðsmála. obm_logo

 

 

Allar aðferðir sem starfsmenn fyrirtækisins nota eru raunprófaðar og því þannig úr garði gerðar að þær beri árangur. Ekki er notast við neinar aðferðir sem hafa ekki sýnt að beri árangur. Markmið okkar að leiða inn nýjar aðferðir í mannauðsmálum á Íslandi og bæta frammistöðu þeirra fyrirtækja er nýta sér þekkingu okkar.

Gildin okkar eru:

Heiðarleiki - fyrir okkur þýðir heiðarleiki að hagsmunir viðskiptavina skuli alltaf vera okkur að leiðarljósi. Við teljum að heiðarlegt nei sé alltaf betra en falskt já.

Ábyrgð - við sýnum ábyrgð með því að notast alltaf og eingöngu við raunprófaðar aðferðir. Við styttum okkur ekki leið á kostnað viðskiptavina, fylgjum alltaf vinnuferlum og gerum það sem við segjumst ætla að gera. 

Jákvæðni- við sjáum jákvæðar hliðar í öllum aðstæðum, við sjáum lausnir en ekki vandamál, við sjáum áskoranir frekar en hindranir og við reynum að uppfylla allar óskir viðskiptavina. 

Sveigjanleiki- við gerum meira en við þurfum að gera og setjum þarfir viðskiptavinarins í fyrsta sæti. 
 

Kennitala: 621210-1810
VSK númer: 107226

 

Opnunartími er undir venjulegum kringumstæðum frá 09:00 - 16:30. 

 

Greinar

Aðrar upplýsingar

Heimilisfang
Höfðabakki 3
 110 Reykjavík
 Sími  571-5000 

Fylgstu með okkur á:

FaceBook-icon Twitter-iconBlog