Gátlisti Frammistöðumats er mjög nytsamlegt tól til að greina frammistöðuvanda og hanna inngrip útfrá. Mikilvægt er að kanna vinnuumhverfið og starfsmanninn í ákveðnu samhengi og veitir þetta verkfæri þann möguleika.
Uppbygging atriða í Gátlistanum byggir á niðurstöðum rannsókna og hafa þessi atriði og listar verið mikið notaðir í fyrirtækjaráðgjöf í Bandaríkjunum. Ráðgjafar Hugtaks hafa fengið þjálfun í notkun þessara atriða og hafa notast mikið við þetta frábæra verkfæri í allri sinni ráðgjöf.
Gátlistinn er notaður við:
- Þegar frammistöðuvandi er greindur
- Þegar gert er frammistöðumat/árangursmat
- Þegar gerð er starfsgreining
- Þegar hönnuð eru inngrip hvað varðar mannauðsmál
- Þegar gerð er gæðahandbók
- Þegar hönnuð eru hvatakerfi
- Samhliða afleiðingagreiningum
- Þegar gerð er þarfagreining fyrir þjálfun starfsmanna
(Gátlistinn er byggður á Performance Diagnostic Checklist og The Human Performance System)
Austin, J. (2000). Performance analysis and performance diagnostics. In J. Austin & J. E. Carr (Eds.), Handbook of applied behavior analysis, (pp.321-349). Reno, NV: Context Press.
Rummler, G.A., Ramais, A.J. & Rummler, R.A. (2010). White space revisited: Creating value through process. San Francisco: Jossey-Bass.