Hugtak.is

Persónuleikapróf

International Personality Item Pool (IPIP) Lew Goldberg Ph.D

Til eru margir kvarðar sem við notumst við hjá Hugtaki til að meta persónuleikaeinkenni. Þeir kvarðar er hafa verið þýddir og staðfærðir á íslensku eru aðallega þeir er heyra undir persónuleikaeinkenni sem hafa einhverja forspá um frammistöðu í starfi.

Mjög mismunandi er hvaða persónuleikaeinkenni gefur forspá um hvaða starf, eitt einkenni getur gefið vísbendingu um einhverskonar "job fit" fyrir ákveðið starf á meðan sama niðurstaða hefði öfug áhrif þegar litið væri til annarskonar starfs.

Persónuleikamælingar eru mikið notaðar við ráðningar og hafa einhverja forspá og er fínt að geta skoðað slíkar mælingar samhliða öðru mati þegar leitað er að hæfasta umsækjandanum í hópi margra. En persónuleikamælingar skal ekki nota einar og sér við val á umsækjendum.

Ráðgjafar Hugtaks eru í samstarfi við erlenda fræðimenn á þessu sviði.  IPIP hefur verið þýtt á fjöldamörg tungumál og eru viðamiklar rannsóknir að baki hvers perónuleikakvarða. Hugtak hefur í fórum sínum íslenska útgáfu af flestum kvörðum IPIP. 

 

Goldberg, L. R. (1999). A broad-bandwidth, public domain, personality inventory measuring the lower-level facets of several five-factor models. In I. Mervielde, I. Deary, F. De Fruyt, & F. Ostendorf (Eds.), Personality Psychology in Europe, Vol. 7 (pp. 7-28). Tilburg, The Netherlands: Tilburg University Press.

Goldberg, L. R., Johnson, J. A., Eber, H. W., Hogan, R., Ashton, M. C., Cloninger, C. R., & Gough, H. C. (2006). The International Personality Item Pool and the future of public-domain personality measures. Journal of Research in Personality, 40, 84-96.

 

Greinar

Aðrar upplýsingar

Heimilisfang
Höfðabakki 3
 110 Reykjavík
 Sími  571-5000 

Fylgstu með okkur á:

FaceBook-icon Twitter-iconBlog