Hugtak.is

Eigendur

 

Eigendur  Hugtaks eru hjónin Guðlaugur Örn og Jóhanna Ella.

Við beitum raunprófuðum aðferðum í öllu okkar starfi og veitum því ávallt bestu mögulegu þjónustu og ráðgjöf sem völ er á. Við stærum okkur af persónulegri þjónustu og sýnilegum árangri. Við erum ávallt til taks, endilega hafið samband á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 571-5000.


j

hanna Ella Jónsdóttir, sálfræðingur og doktorsnemi við H.Í.

  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 Jóhanna Ella er löggiltur sálfræðingur og hefur starfað meðal annars við kennslu,  ráðningar, rannsóknir  og útgáfu sálfræðilegra og staðlaðra prófa og ýmsa ráðgjöf. Hún er í doktorsnámi við Háskóla Íslands og stundar rannsóknir á sviði frammistöðustjórnunar ( bæði einstaklinga og fyrirtækja í heild) og aukningu öryggishegðunar innan fyrirtækja. Hennar áhugi hefur ávallt verið vinnusálfræði og allt sem tengist mannauðstjórnun. Hún hefur sérstakan áhuga á vinnuhegðun útfrá vísindalegu sjónarmiði og hefur tileinkað sér slíka aðferðarfræði við störf sín. Hún er formaður og stofnandi nútíma kvenfélagsins Silfur, hún meðlimur  SATÍS sem eru samtök um atferlisgreiningu á Íslandi og er í félagi fræðimanna og ráðgjafa um allan heim sem kallast OMB network.  Hún hefur gefið út greinar um viðbrögð umsækjenda við valaðferðum og starfað við rannsóknir á því sviði. Nú er hún einnig að gera rannsóknir á sviði frammistöðugreiningar fyrirtækja, frammistöðustjórnun og aukningu öryggishegðunar í doktorsnámi sínu. 
B.a. í sálfræði frá Háskóla Íslands
 Cand.Psych. í sálfræði frá Háskóla Íslands.
 Löggilding frá Landlæknisembættinu

Er í doktorsnámi í sálfræði við Háskóla Íslands á sviði Organizational Behavior Management


426239_366174653395702_202806853065817_1511903_1522325851_n
Guðlaugur Örn Hauksson, viðskiptafræðingur

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Guðlaugur Örn er viðskiptafræðingur með sálfræðibakgrunn. Hann hefur sérhæft sig í alþjóðaviðskiptum og mannauðsstjórnun og hefur unnið við þjálfun, kennslu og ýmsa ráðgjöf. Guðlaugur· hóf starfsnám sitt í Kína og bjó þar um tíma hefur því góðan skilning á menningarmun og sérstakan áhuga á alþjóðlegum ·tengslum. Hann hefur tengt sig við ráðgjafa um allan heim. Hann er í félagi fræðimanna og ráðgjafa sem kallast OBM network sem hefur þá sameiginlegu sýn að skoða vinnutengda hegðun útfrá vísindalegu sjónarmiði. Guðlaugur hefur mikinn áhuga á öllu sem tengist frammistöðu, frammistöðuvanda, ·mati á árangri, ásamt því að hafa mikinn áhuga á hvata- og umbunakerfum og hefur tileinkað sér sérstaklega stefnumiðað árangursmat ·(Balanced scorecard) sem og ·BSAQ verkfærið og í sínu starfi. 
B.a. í Sálfræði frá Háskóla Íslands.
 M.sc. í Alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík.
 M.S. í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands


 

 

·

 

Greinar

Aðrar upplýsingar

Heimilisfang
Höfðabakki 3
 110 Reykjavík
 Sími  571-5000 

Fylgstu með okkur á:

FaceBook-icon Twitter-iconBlog